Jólaljósin okkar kveikt í Gufuneskirkjugarði

Skrifað þann 29. nóvember 2020

Það gleður okkur að segja frá því að búið er að kveikja á raflýstum jólaljósum í Gufuneskirkjugarði. Kveikt er á ljósum eigi síðar en fyrsta í aðventu - en það hefur verið hefð frá því árið 1994.

Starfsmenn hafa unnið hörðum höndum alla morgna í nóvember við að koma upp krossum - en í ár hefur verið óvenjumikið af frost og snjó.

Líkt og áður er garðurinn yfirfarinn alla daga, til að tryggja að ljósin skíni skært yfir leiðum yfir hátíðarnar.

Starfsmenn verða áfram við störf í desember. Hægt að panta kross hér á netinu, eða með því að hringja í síma 698.4444.